Stafir stafirfasteignir.is
Stafir er nýtt heiti á því félagi sem áður var Fasteignafélag Íslenskrar fjárfestingar. Nýtt nafn var tekið upp á árinu 2023 í kjölfar stefnumótunarvinnu sem farið var í á árinu. Stafir eru að fullu í eigu Íslenskrar fjárfestingar.
Stafir er fasteignafélag sem fjárfestir í atvinnuhúsnæði. Áhersla félagsins til framtíðar, m.a. með vísan til framangreindrar stefnumótunar, er einkum á fasteignir sem hýsa hótel, verslun, skrifstofur, iðnað og heilbrigðisþjónustu. Markmið félagsins er að stækka á öllum framangreindum sviðum á næstu árum í samvinnu við trausta leigutaka.
Þegar litið er á helstu fjárfestingar félagsins þá vegur einna þyngst uppbygging fasteignasafns í hótelum sem er í útleigu til Flóra hotels. Undir vörumerkinu Reykjavík Residence hafa sögufræg og glæsileg hús við Hverfisgötu, Lindargötu og Veghúsastíg verið endurbætt þar sem saga og fyrra útlit hvers húss hefur verið varðveitt og virt. Í dag geyma þessi átta hús 63 hótelíbúðir og vínbarinn Port 9. Hótelið ODDSSON er síðan í húsnæði félagsins við Grensásveg 16 og er þar um að ræða 77 hótelherbergi.
Framkvæmdastjóri félagsins er Björn Þór Karlsson.
Íslenskar fasteignir isfast.is
Íslenskar fasteignir ehf. er fasteignaþróunarfélag sem sérhæfir sig í fjárfestingum í lóðum og fasteignum fyrir íbúðir eða atvinnuhúsnæði. Þá annast félagið einnig verkefnastjórnun og umsjón með þróun fasteigna í samstarfi við eigendur fasteigna eða fjárfesta. ÍF býður sérþekkingu á öllum þáttum framkvæmda og undirbúningi að þeim, þ.m.t. skipulagsvinnu, hönnun, útboði verkþátta, fjármögnun og sölu. Jafnframt tekur félagið að sér rekstur fasteigna, viðhald og eftirlit eftir þörfum fasteignaeiganda hverju sinni.
Íslenskar fasteignir býður yfirgripsmikla reynslu og þekkingu á umsjón verkþátta á mismunandi stigum fasteignaverkefna:
• Greiningu viðskiptatækifæra
• Hagkvæmnis- og arðsemisgreiningu
• Áætlanagerð við framkvæmdir
• Útboð og verksamninga
• Fjármögnun
• Verkefnastjórnun og samskipti við arkitekta/opinber yfirvöld/byggingaraðila
• Skipulagsmál
• Byggingastjórn
• Skýrslur um framvindu og sjóðstreymi á verktíma
• Rekstur, markaðssetningu og sölu
Starfsmenn ÍF hafa áratugareynslu af flóknum og viðamiklum fasteignaverkefnum.
Sveinn Björnsson er framkvæmdastjóri félagsins og Gunnar Thoroddsen stjórnarformaður.