Félög í minnihlutaeign Íslenskrar fjárfestingar ehf.
Leitar Capital Partners er skráður rekstraraðili sérhæfðra sjóða en að fyrsta sjóðnum koma rekstraraðilar og einkafjárfestar ásamt Arion banka og Vís. Leiðandi fjárfestar í verkefninu eru Íslensk fjárfesting og Birgir Örn Birgisson, sem er jafnframt stjórnarformaður nýja fjárfestingarsjóðsins.
Sjá www.leitar.is
Íslensk fjárfesting er fjárfestir í tveimur leitarsjóðum á vegum Vonzeo Capital. Sjóðurinn byggir á sömu hugmyndafræði og Leitar Capital Partners en áhersla Vonzeo er fremur alþjóðlegar fjárfestingar.
Florealis býður upp á úrval skráðra jurtalyfja og lækningavara sem byggja á virkum náttúruefnum. Fyrirtækið styður við meðhöndlun sjúkdóma á borð við kvíða, svefntruflanir og vægar þvagfærasýkingar. Allt eru þetta algengir sjúkdómar sem skorta fjölbreyttari meðferðarúrræði. Vörur Florealis eru fáanlegar í öllum apótekum á Íslandi og fjölmörgum apótekum í Svíþjóð. Allar vörur frá Florealis eru skráðar og viðurkenndar hjá lyfjayfirvöldum á öllum Norðurlöndunum.
Sjá www.florealis.is
Laufið er stafrænn vettvangur þar sem stjórnendur íslenskra fyrirtækja geta sameinast og hagnýtt sér fjölbreytt verkfæri í vegferð að sjálfbærari fyrirtækjarekstri, samfélagslegri ábyrgð og í baráttunni við loftslagsvána.
Sjá www.laufid.is
Félagið heldur utan um eignarhlut fjárfesta í Kynnisferðum og Norðursiglingu en hafði áður einbeitt sér að fjárfestingum í afþreytingatengdri ferðaþjónustu, en þær fjárfestingar sameinuðust inn í Kynnisferðum.