Íslensk fjárfesting hefur markað sér þá stefnu að fjárfesta á fjórum aðalsviðum: ferðaþjónustu, heilbrigðisþjónustu, fasteignum og útivist og hreyfingu. Félagið leitast við að vera meirihlutaeigandi eða í leiðandi stöðu í þeim verkefnum sem fjárfest er í.

Reykjavík Residence Hotel, Tower Suites Reykjavík, ODDSSON, 201 Hotel og Port9 koma nú fram undir sameiginlegu vörumerki, Flóra Collection, ásamt nýjum sameiginlegum vef. Hver staður heldur sínu nafni, starfsfólki og sérkennum.

Íslensk fjárfesting hefur hlotið viðurkenningu Creditinfo sem eitt af Framúrskarandi fyrirtækjum ársins 2026. Viðurkenningin er veitt fyrirtækjum sem uppfylla ströng skilyrði um fjárhagslegan styrk, stöðugleika og traustan rekstur.

Íslensk fjárfesting hefur sett fasteignafélagið Stafir í söluferli. Safnið telur níu fasteignir, um 10,2 þúsund fermetra, að stórum hluta sögufræg hús í miðborg Reykjavíkur sem hafa verið endurgerð með áherslu á upprunalegt útlit.



















Fjárfestingafélag í jafnri eigu Arnars Þórissonar og Þóris Kjartanssonar frá stofnun.
Ferðaþjónusta, heilbrigðisþjónusta, fasteignir og útivist og hreyfing.
Framkvæmdastjórn styður félögin við fjármögnun, þróun, lögfræði, upplýsingatækni, mannauðsmál og rekstur.
Innan samstæðunnar starfar fjölbreyttur hópur fólks á Íslandi og í Evrópu.