Flóra Collection stígur fram – íslensk gestrisni með nýrri sýn
Fimm hótel og Port9, elsti vínbar landsins, koma nú fram undir sameiginlegu vörumerki, Flóra Collection. Með nýrri ásýnd, öflugu teymi og skýrri framtíðarsýn tekur íslenskt hótelfélag næsta skref í uppbyggingu sinni. Í hjarta Flóru er fólkið, gestrisnin og sameiginlegur metnaður til að skapa eftirminnilega upplifun fyrir gesti.
Flóra Collection sameinar Reykjavík Residence Hotel, Tower Suites Reykjavík, ODDSSON og 201 Hotel, auk Port9. Staðirnir hafa þegar verið hluti af sömu starfsemi en koma nú fram undir einu vörumerki. Samhliða er nýr sameiginlegur vefur, floracollection.is, tekinn í notkun, þar sem gestir og samstarfsaðilar geta kynnt sér alla staðina á einum stað. Hver staður heldur sínu nafni, starfsfólki og sérkennum, og breytingin hefur ekki áhrif á fyrirliggjandi bókanir eða samninga við gesti og samstarfsaðila. Flóra Collection er í eigu Íslenskrar fjárfestingar.
Fólkið á bak við Flóru
Að baki Flóra Collection stendur um 120 manna teymi með ólíka reynslu, hæfileika og hugmyndir. Það er samvinna þessa fólks sem mótar upplifun gesta og gefur hverjum stað sinn karakter. Hjá Flóru er lögð áhersla á að fólk vinni saman, deili þekkingu og fái tækifæri til að vaxa, þar sem frumkvæði er velkomið og hugmyndir fá að blómstra.
Það sem gerir Flóru sérstaka er fólkið okkar. Við erum með öflugt teymi sem býr yfir fjölbreyttri reynslu, mikilli sköpunargleði og einlægum metnaði til að gera vel. Þegar fólk tengist, vinnur saman og fær svigrúm til að koma hugmyndum sínum í framkvæmd gerast góðir hlutir. Það er sá kraftur sem við viljum byggja Flóru á og sem gestirnir okkar eiga að finna fyrir.
Andrés Jónsson, forstjóri Flóra Collection
Ólíkir staðir með sameiginlega sýn
Fjölbreytni er einn helsti styrkur Flóru. Reykjavík Residence Hotel býður upp á vandaða íbúðagistingu í sögufrægum húsum í miðborg Reykjavíkur, þar sem saga og nútímaþægindi mætast. Tower Suites Reykjavík býður upp á átta svítur á 20. hæð Höfðatorgs með einstöku útsýni yfir borgina. ODDSSON hótelin leggja áherslu á nútímalega hönnun, þægindi og aðgengilega gistingu, og 201 Hotel í Kópavogi eykur enn á fjölbreytni gistiframboðsins. Port9 fagnaði nýlega tíu ára afmæli og hefur skapað sér sterkan sess í veitingalífi borgarinnar.
Þótt staðirnir séu ólíkir eiga þeir sameiginlegan grunn: að taka vel á móti fólki, skilja ólíkar þarfir gesta og skapa hlýlega upplifun. Sú upplifun verður ekki til með byggingum og hönnun einni saman, heldur í samskiptum, umhyggju og þeim litlu atriðum sem starfsfólkið leggur alúð við á hverjum degi.
Innblástur úr íslenskri náttúru
Nafnið Flóra Collection og ný ásýnd vörumerkisins sækja innblástur í íslenska náttúru og fjölbreytileika íslenskrar flóru. Rétt eins og ólíkar plöntur mynda saman einstaka heild, samanstendur Flóra Collection af stöðum sem hver hefur sína sögu og sérstöðu. Hugmyndin er ekki að gera staðina eins, heldur að leyfa hverjum þeirra að njóta sín og um leið styrkja það sem sameinar þá.
Nýja vörumerkið er íslensk hönnun. Símon Viðarsson og Anton Illugason hönnuðu heildarásýnd Flóru, þar á meðal liti, leturgerð og útlit nýja vefsins, og fengu Arnar Helga til liðs við sig við hönnun merkisins og mynstranna. Áhersla er lögð á náttúrulega, hlýlega og tímalausa ásýnd sem endurspeglar íslenskan uppruna Flóru.
Við vildum skapa vörumerki sem nær utan um það sem sameinar staðina okkar, án þess að taka frá þeim sérkennin sem gera þá að því sem þeir eru. Áskorunin var að gera það fyrir sex ólíka staði án þess að neinn þeirra hyrfi í heildinni. Íbúð í sögufrægu húsi, svíta á 20. hæð og rótgróinn vínbar eiga ekki að líta eins út, en þau eiga að tilheyra sömu fjölskyldu, og það tókst Símoni og Antoni að fanga einstaklega vel. Flóra Collection gefur okkur tækifæri til að segja sameiginlega sögu, byggja sterkari tengsl við gesti og samstarfsaðila og kynna fjölbreytta upplifun okkar á skýrari og heildstæðari hátt.
Karítas K. McCrann, forstöðumaður sölu- og markaðssviðs Flóra Collection
Byggt á sterkum grunni
Saga hótelstarfseminnar nær aftur til ársins 2011 þegar Reykjavík Residence Hotel hóf starfsemi. Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á vandaða gistingu með sérstöðu, meðal annars með því að varðveita og endurnýja sögufræg hús í hjarta Reykjavíkur og gefa þeim nýtt hlutverk. Síðan þá hefur starfsemin vaxið, nýir gististaðir bæst við og nú síðast 201 Hotel árið 2025.
Kynning Flóra Collection er bæði framhald þeirrar uppbyggingar og upphaf að næsta kafla. Markmiðið er að byggja upp sterkt og framsækið íslenskt hótelfélag þar sem hver staður fær að blómstra á sinn hátt og hver gestur skiptir máli. Frekari vöxtur og ný verkefni eru fram undan hjá Flóra Collection en frekar verður greint frá þeim á komandi misserum.