Íslensk fjárfesting hefur einsett sér að vera virkur þátttakandi á markaði fyrir einkarekna heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Fjárfestingar félagsins á sviðinu eru nær allar í öldrunarþjónustu.
Með kaupum á félaginu Öldungi hf., sem rekur hjúkrunarheimilið Sóltún, hóf Íslensk fjárfesting virka þátttöku í íslenskri öldrunarþjónustu árið 2009. Eftirspurn eftir þjónustu í þessum geira mun aukast verulega á næstu árum og áratugum í takt við hækkandi meðalaldur þjóðarinnar.
Stefnan er að einbeita sér að þeim þáttum öldrunarþjónustunnar þar sem mest vaxtartækifæri eru framundan — að auka framboð af öldrunarþjónustu á Íslandi með það að leiðarljósi að veita öldruðum þá þjónustu sem þeir óska helst eftir, á þeim stað sem hentar þeim best og þegar þeir þurfa á henni að halda, helst í samstarfi við stærsta þjónustukaupandann, ríkið.
Undir merkjum Sóltúns er rekið hjúkrunarheimili í Reykjavík og á Sólvangi í Hafnarfirði, dagdvalir, heimaþjónustan Sóltún Heima og Sóltún Heilsusetur — nýsköpunarverkefni sem stuðlar að bættum lífsgæðum aldraðra í sjálfstæðri búsetu. Ný stefna Sóltúns, Nærandi samfélag, leggur áherslu á umhyggju, virðingu og velsæld í öllu starfi.
Móðurfélag heilbrigðissviðsins. Forstjóri Sóltúns heilbrigðisþjónustu og dótturfélaga er Halla Thoroddsen.
www.soltun.is ↗Hjúkrunarheimilið Sóltún hefur starfað frá 2002. Samið hefur verið um stækkun heimilisins og framkvæmdir standa yfir.
www.soltun.is ↗Hjúkrunarheimili, dagdvalir, endurhæfing og heimaþjónustan Sóltún Heima í Hafnarfirði, auk Sóltúns Heilsuseturs.
www.solvangur.is ↗Nýtt hjúkrunarheimili í byggingu við Hringhamar í Hafnarfirði. Rekstur er áætlaður frá árinu 2027.
Þjónusta tengd erlendum starfsmönnum og atvinnumiðlun heilbrigðisstarfsfólks.
www.solstodur.is ↗