Fjárfestingar

Útivist og hreyfing

Útivist og hreyfing var stofnað sem fjárfestingarsvið árið 2021 með það að markmiði að efla fjárfestingu í heilsu-, útivistar- og hreyfingargeiranum.

Árið 2021 keyptu Íslensk fjárfesting og J.S. Gunnarsson saman verslunina Útilíf af Högum og frá árslokum 2023 er Útilíf í fullri eigu Íslenskrar fjárfestingar. Um mitt ár 2023 var einnig gengið frá kaupum Útilífs á versluninni Ölpunum og rekstur þeirra felldur inn í starfsemina.

Félagið starfrækir íþróttavöruverslun í Kringlunni og útivistarverslun í Skeifunni, auk The North Face verslunar á Hafnartorgi sem dótturfélagið TNF Ísland rekur.

Útilíf vill vera aflvaki hreyfingar — meðal annars með 100 KM áskoruninni sem hvetur almenning til að hreyfa sig í maí og stuðningi við viðburði á borð við Hengil Ultra, stærsta utanvegahlaup landsins.

Félögin

Útilíf

Útilíf

Íþrótta- og útivistarverslanir í Kringlunni og Skeifunni. Framkvæmdastjóri er Brynjar Hafþórsson.

www.utilif.is ↗
The North Face Reykjavík

The North Face Reykjavík

Verslun á Hafnartorgi, rekin af TNF Íslandi, dótturfélagi Útilífs.

www.tnfreykjavik.is ↗