Fjárfestingar

Fasteignir

Fasteignasvið félagsins hefur stækkað mikið undanfarin ár — annars vegar með fasteignafélaginu Stöfum og hins vegar með fasteignaþróunarfélaginu Íslenskum fasteignum.

Stafir

Stafir

Fasteignafélag

Stafir eru fasteignafélag samstæðunnar, að fullu í eigu Íslenskrar fjárfestingar. Félagið fjárfestir í atvinnuhúsnæði með áherslu á fasteignir sem hýsa hótel, verslun, skrifstofur, iðnað og heilbrigðisþjónustu, í samvinnu við trausta leigutaka.

Þyngst vegur uppbygging fasteignasafns í hótelum sem er í útleigu til Flóra hotels. Undir vörumerkinu Reykjavík Residence hafa sögufræg hús við Hverfisgötu, Lindargötu, Veghúsastíg og Vatnsstíg verið endurbætt af virðingu við sögu þeirra og fyrra útlit.

Framkvæmdastjóri er Björn Þór Karlsson.

www.stafirfasteignir.is ↗

Íslenskar fasteignir

Íslenskar fasteignir

Fasteignaþróunarfélag

Íslenskar fasteignir eru þekkingarhús á öllum sviðum fasteignaþróunar: greining viðskiptatækifæra, hagkvæmnis- og arðsemisgreining, skipulagsvinna, hönnun, útboð, fjármögnun, byggingarstjórn og rekstur. Félagið annast verkefnastjórnun og umsjón með þróun fasteigna í samstarfi við eigendur og fjárfesta.

Meðal verkefna eru ný íbúðarbyggð við Reykjalund í Mosfellsbæ, strandhótel og nýtt miðsvæði í Þorlákshöfn, verslunar- og þjónustusvæði við Voga, hjúkrunarheimilið Hamranes og Randbyggð við nýjan Landspítala. Þá sinnir félagið byggingarstjórn og eftirliti fyrir aðra fjárfesta, m.a. við Hyatt Centric hótel á Laugavegi.

Framkvæmdastjóri er Sveinn Björnsson.

www.isfast.is ↗