Fjárfestingar

Ferðaþjónusta

Ferðaþjónusta er stærsta fjárfestingarsvið Íslenskrar fjárfestingar. Félagið hefur fjárfest í ferðaþjónustu frá árinu 2007.

KILROY

Ferðaþjónusta í Evrópu

Stærsta fjárfesting félagsins á ferðaþjónustusviði er KILROY International A/S, evrópskt ferðaþjónustufyrirtæki sem er leiðandi á þeim sviðum sem það starfar á. Félagið starfar í átta löndum, með skrifstofur á 24 stöðum í Evrópu, undir sex vörumerkjum.

KILROY leggur mikið upp úr því að byggja upp vörumerki sín og efla það traust sem viðskiptavinirnir bera til þeirra. Mikil áhersla er lögð á menntun starfsfólks og að það búi sjálft að umtalsverðri ferðareynslu, auk þess sem fjárfest hefur verið markvisst í upplýsingatækni og þjónustu á netinu.

Vörumerkin

KILROY

KILROY

Sérsniðnar ferðir fyrir ungt fólk og námsmenn. Arfleifð vörumerkisins nær aftur til ársins 1946 og byggir á þeirri trú að ferðalög móti fólk og opni heiminn.

BENNS

BENNS

Hefur frá 1963 sérhæft sig í hópferðum, einkum fyrir skóla og fyrirtæki — sérsniðnar ferðir með lest, rútu eða flugi, aðallega til stórborga um allan heim.

Jysk Rejsebureau · Winberg Travel

Jysk Rejsebureau · Winberg Travel

Jysk Rejsebureau (stofnað 1984) og Winberg Travel (1969) skapa ferðir sem eru sérstæðar að innihaldi en á viðráðanlegu verði — sérsniðnar ferðir, pakkaferðir fyrir 18–30 ára og hópferðir.

MyPlanet

MyPlanet

Sameinaðist Kilroy-samstæðunni á ný í október 2024. Sérsniðnar ferðaupplifanir fyrir 45 ára og eldri; einstaklingsferðir BENNS í Danmörku og Noregi færast undir MyPlanet með tímanum.

Education Abroad by KILROY

Education Abroad by KILROY

Námsráðgjöf sem starfar undir merkinu Education Abroad frá 2024 í Danmörku, Noregi og Svíþjóð — ráðgjöf um nám og starfsnám erlendis í samstarfi við háskóla og menntastofnanir um allan heim.

ISIC Student Services

ISIC Student Services

Kilroy-samstæðan fer með einkaumboð ISIC, alþjóðlega námsmannakortsins, á fimm markaðssvæðum. Kortinu fylgja yfir 150.000 fríðindi um allan heim og appið er aðgengilegt í yfir 100 löndum.

Flights by KILROY

Flights by KILROY

Flugmiðasala á netinu hefur verið hluti af starfseminni í meira en 20 ár og verður rekin sem sjálfstæð rekstrareining frá árinu 2026.

Félagið

KILROY International

KILROY International

Móðurfyrirtæki evrópskra ferðaþjónustufélaga sem hvert og eitt er leiðandi á sínum markaði. Sérhæfing í einstaklingsmiðuðum ferðum, hópferðum með fræðslutilgangi og ráðgjöf um nám erlendis. Vörumerki samstæðunnar eru KILROY, BENNS, Jysk Rejsebureau, Winberg Travel, MyPlanet, Education Abroad by KILROY og ISIC.

www.kilroy.net ↗

Flóra hotels

Hótel og veitingar í Reykjavík og Kópavogi

Íslensk fjárfesting hefur byggt upp félagið Flóra hotels frá árinu 2010. Undir merkjum þess eru rekin fimm hótel og vínbar í Reykjavík og Kópavogi. Flest húsanna eru sögufrægar byggingar sem hafa verið endurnýjaðar af virðingu við uppruna sinn og sögu þeirra er miðlað í máli og myndum í hverju húsi fyrir sig. Framkvæmdastjóri er Andrés Jónsson.

Félögin

Flóra hotels

Flóra hotels

Móðurfélag á hótel- og veitingasviði: Reykjavík Residence hótel, ODDSSON Midtown, ODDSSON Downtown, Tower Suites Reykjavík, 201 hótel og vínbarinn Port 9. Framkvæmdastjóri er Andrés Jónsson.

www.florahotels.is ↗
Reykjavík Residence hótel

Reykjavík Residence hótel

Flaggskip Flóru — 101 hótelíbúð í níu sögufrægum byggingum í miðborg Reykjavíkur. Hótelið hefur unnið til fjölmargra verðlauna.

www.rrhotel.is ↗
Tower Suites Reykjavík

Tower Suites Reykjavík

Átta lúxussvítur á 20. hæð Höfðatorgs með einstöku útsýni yfir borgina.

www.towersuites.is ↗
ODDSSON hótelin

ODDSSON hótelin

Stílhrein og nútímaleg hótel á Grensásvegi 18 og Háteigsvegi 1, hóflega verðlögð og hentug fyrir smærri hópa og fjölskyldur.

www.oddsson.is ↗
201 hótel

201 hótel

Hótel í Kópavogi sem Flóra tók yfir rekstur á árið 2025.

www.201hotel.is ↗
Port 9

Port 9

Vínbar við Veghúsastíg, opnaður 2016. Metnaður í áhugaverðum og ljúffengum eðalléttvínum.

www.port9.is ↗