ARNAR ÞÓRISSON, EIGANDI

Arnar er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og MBA frá viðskiptaháskólanum IESE í Barcelona. Arnar hefur starfað um langt árabil í ferðageiranum, hvort tveggja á Íslandi og erlendis. Arnar hefur verið stjórnarformaður Íslenskra fasteigna ehf. í 12 ár. Hann hefur jafnframt verið stjórnarformaður Kilroy International frá 2007 og stjórnarformaður Íslenskrar fjárfestingar ehf. frá 1999. Áður starfaði Arnar m.a. sem framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá KILROY, aðstoðarforstjóri og fjármálastjóri flugfélagsins Atlanta og stjórnarformaður CAOZ. Arnar er fæddur 1964.

ÞÓRIR KJARTANSSON, EIGANDI

Þórir er byggingaverkfræðingur að mennt frá Háskóla Íslands og MBA frá viðskiptaháskólanum IESE í Barcelona. Þórir hefur starfað í ferðageiranum, heilbrigðisgeiranum og fasteignageiranum í 19 ár. Hann sat í átta ár í stjórn Landspítala háskólasjúkrahúss og hefur setið í opinberum nefndum á heilbrigðissviði, svo sem nefnd um byggingu á nýju húsnæði fyrir Landspítala háskólasjúkrahúss. Þórir hefur starfað sem framkvæmdastjóri Íslenskrar fjárfestingar frá 1999. Áður en Þórir kom að stofnun Íslenskrar fjárfestingar ehf. starfaði hann hjá Icelandair, Icelandspring og Philips. Þórir er fæddur 1969.

Framkvæmdastjórn

Framkvæmdastjórn Íslenskrar fjárfestingar skipa sex aðilar: Arnar Þórisson, stjórnarformaður félagsins, Þórir Kjartansson, framkvæmdastjóri, Björn Þór Karlsson, lögmaður, Einar Þór Steindórsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar, Linda Metúsalemsdóttir, fjármálastjóri og Magnús Edvardsson, framkvæmdastjóri fjárfestinga. Framkvæmdastjórn hefur það hlutverk að styðja við núverandi fyrirtæki sem Íslensk fjárfesting er fjárfestir í ásamt því að skoða nýjar fjárfestingar. Einnig heldur framkvæmdastjórn utan um fjárflæði allra dótturfyrirtækja Íslenskrar fjárfestingar ásamt því að sjá um ávöxtun á fjármagni og aðstoða dótturfélög við fjármögnun, fjármál, þróun og rekstur.

 

Björn Þór Karlsson
bjorn@ip.is

Björn er lögmaður fyrirtækisins og framkvæmdastjóri Stafa. Hann hefur áður starfað hjá Thule Investments, Lögfræðistofu Gunnars Thoroddsen, Legis - lögfræðistofu og við eigin rekstur. Björn er með BA gráðu og meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands og er með réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi.





Linda Metúsalemsdóttir
linda@ip.is

Fjármálastjóri Íslenskrar fjárfestingar ehf. er Linda Metúsalemsdóttir. Linda hefur yfir 20 ára starfsreynslu á fjármálamarkaði, einkum á sviði fjár- og uppgjörsmála. Hún var áður fjármálastjóri Thule Investments og starfaði þar áður hjá SP-Fjármögnun og Fjárfestingarfélagi Íslands.

Einar Steindórsson
einar@ip.is

Einar er framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar. Einar situr í stjórnum ýmissa fyrirtækja í samstæðu Íslenskrar fjárfestingar ásamt því að vera framkvæmdastjóri og meðstofnandi Leitar Capital Partners. Einar hefur víðtæka reynslu af störfum á fjármálamarkaði en frá árinu 2005 hefur hann starfað hjá Straumi Fjárfestingabanka, H.F. Verðbréfum, Kalan Capital Reykjavík og Deutsche Bank. Einar er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og MBA gráðu frá IESE Business School í Barcelona. Hann hefur jafnframt lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

Magnús Edvardsson
magnus@ip.is

Magnús er framkvæmdastjóri fjárfestinga. Magnús hefur yfir 15 ára reynslu á fjármálamarkaði en hann starfaði í fyrirtækjaráðgjöf hjá Kviku banka og forverum á árunum 2009-2023. Þar á undan starfaði Magnús hjá Kaupþingi. Magnús er með M.Sc. fjárfestingarstjórnun frá Háskólanum í Reykjavík og B.Sc. í viðskiptafræði frá sama skóla.

 

Starfsmenn

Hjá fyrirtækjum í meirihlutaeigu Íslenskrar fjárfestingar starfa 987 starfsmenn (765 FTE). Hjá móðurfélaginu starfa fjórtán manns sem sinna fjárfestingum, þróun verkefna, fjármála­stjórnun, framkvæmdastjórn og utanumhaldi.

Diljá Líf Ragnarsdóttir Thorarensen
Gjaldkeri/Móttaka
dilja@ip.is

Halldóra Björk Jónsdóttir
Bókhaldsfulltrúi
halldora@ip.is

Karitas Kjartansdóttir
Markaðsmál
karitas@ip.is

Laufey Ólafsdóttir
Bókhaldsfulltrúi
laufey@ip.is

Lilja Karen Þrastardóttir
Gjaldkeri/Móttaka
lilja@ip.is

Rakel Dögg Bragadóttir
Bókhald
rakel@ip.is

Sigríður Rósa Kristinsdóttir
Launafulltrúi
siggarosa@ip.is